Job 30

1En nú hlæja þeir að mér, sem yngri eru en ég, mundi ég þó ekki hafa virt feður þeirra þess að setja þá hjá fjárhundum mínum. 2Hvað hefði og kraftur handa þeirra stoðað mig, þar sem þeir aldrei verða fullþroska? 3Þeir eru örmagna af skorti og hungri, naga þurrt landið, sem í gær var auðn og eyðimörk. 4Þeir reyta hrímblöðku hjá runnunum, og gýfilrætur er fæða þeirra. 5Þeir eru flæmdir úr félagi manna, menn æpa að þeim eins og að þjóf, 6svo að þeir verða að hafast við í hræðilegum gjám, í jarðholum og berghellum. 7Milli runnanna rymja þeir, og undir netlunum safnast þeir saman, 8guðlaust og ærulaust kyn, útreknir úr landinu. 9Og nú er ég orðinn þeim að háðkvæði og orðinn umtalsefni þeirra. 10Þeir hafa andstyggð á mér, koma ekki nærri mér og hlífast jafnvel ekki við að hrækja framan í mig. 11Þar sem Guð hefir leyst streng sinn og beygt mig, þá sleppa þeir og beislinu fram af sér gagnvart mér. 12Mér til hægri handar vex hyski þeirra upp, fótum mínum hrinda þeir frá sér og leggja glötunarbrautir sínar gegn mér. 13Þeir hafa rifið upp stig minn, að falli mínu styðja þeir, sem engan hjálparmann eiga. 14Þeir koma sem inn um vítt múrskarð, velta sér áfram innan um rústir. 15Skelfingar hafa snúist móti mér, tign mín er ofsótt eins og af stormi, og gæfa mín er horfin eins og ský. 16Og nú rennur sála mín sundur í tárum, eymdardagar halda mér föstum. 17Nóttin nístir bein mín, svo að þau losna frá mér, og hinar nagandi kvalir mínar hvílast ekki. 18Fyrir mikilleik máttar hans er klæðnaður minn aflagaður, hann lykur fast um mig, eins og hálsmál kyrtils míns. 19Guð hefir kastað mér ofan í saurinn, svo að ég er orðinn eins og mold og aska. 20Ég hrópa til þín, en þú svarar ekki, ég stend þarna, en þú starir á mig. 21Þú ert orðinn grimmur við mig, með krafti handar þinnar ofsækir þú mig. 22Þú lyftir mér upp á vindinn, lætur mig þeytast áfram, og þú lætur mig farast í stormgný. 23Því að ég veit, að þú vilt leiða mig til Heljar, í samkomustað allra þeirra er lifa. 24En _ rétta menn ekki út höndina, þegar allt hrynur? eða hrópa menn ekki á hjálp, þegar þeir eru að farast? 25Eða grét ég ekki yfir þeim, sem átti illa daga, og hryggðist ekki sál mín vegna fátæklingsins? 26Já, ég bjóst við góðu, en þá kom illt, vænti ljóss, en þá kom myrkur. 27Það sýður í innýflum mínum án afláts, eymdardagar eru yfir mig komnir. 28Svartur geng ég um, þó ekki af sólarhita, ég stend upp, í söfnuðinum hrópa ég á hjálp. 29Ég er orðinn bróðir sjakalanna og félagi strútsfuglanna. 30Hörund mitt er orðið svart og flagnar af mér, og bein mín eru brunnin af hita. 31Og fyrir því varð gígja mín að gráti og hjarðpípa mín að harmakveini.
Copyright information for Icelandic